Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7

Björgunarfólk gengur fram hjá byggingu í Penonome sem eyðilagðist í skjálftanum.EPA / BEINVENIDO VELASCOJarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pitaloza Arriba, í suðurhluta landsins, um 200 kílómetra frá Panamaborg.Jörðin skalf í um eina mínútu og nokkuð tjón varð á byggingum og vegakerfi í miðju landsins.Jose Raul Mulino, forseti Panama, segir skjálftann hafa valdið miklum hörmungum og sumir vegir séu gjöreyðilagðir. Enn hefur þó ekki verið tilkynnt um manntjón eða slys á fólki. Gefin var úr flóðbylgjuviðvörun eftir skjálftann en hún var síðan afturkölluð.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd