Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolíu fyrir Bandaríkin og alþjóðamarkað tafarlaust.Trump greindi frá þessu í færslu á Truth Social í gær og sagði að samtal þeirra tveggja hafi verið mjög árangursríkt.Bandaríkjaforseti segir að Rússland afhendi auk þess 500.000 tonn af dísil í nóvember og eina milljón tonna í desember. Rússlandsforseti sagði í samtali við rússneska fjölmiðla að til lengri tíma litið gætu Rússar afgreitt allt að þrjár milljónir tunna af olíu á mánuði.Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti hefur gagnrýnt samninginn og segir hann óheiðarlegan, ósamboðinn bandamönnum og veikburða ákvörðun.Zelensky segir að með samningnum fái Rússar aukið fjármagn til stríðsrekstursins og