Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur safnað í hljómsveit og sett stefin í nýjan búning. Hljómsveitin mætti í Vikuna með Gísla Marteini í kvöld og spilaði nokkur stef. En þekkir þú stefin?Hljómsveitina skipa (frá vinstri) Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur, Birkir Blær Ingólfsson á altsaxófón, Björgvin Ragnar Hjálmarsson á baritónsaxófón, Albert Sölvi Óskarsson á bassasaxófón, Tumi Árnason á tenórsaxófón og Tumi Torfason á trompet.