JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsendingu á netinu. Þá segist hann ekki vera viss um að af útsendingunni verði.Hasan myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009. Aftakan mun fara fram á sama stað.Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í gær að almenningi yrði gert kleift að fylgjast með þegar aftökusveit tekur Hasan af lífi 3. desember.„Við ætlum að sjá til þess að fólk geti horft á hana og að hún verði opinber,“ sagði Hegseth og bætti við að það væri mikilvægt að gera sér grein fyrir því að glæpir sem þessi hefðu alvarlegar afleiðingar. „EITTHVAÐ SEM ÍRAN OG TALIBANAR GERA“ Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, fordæmir fy