Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar – að landið banni minkarækt og fari þannig að dæmi annarra landa í Evrópu.Kveikur fjallaði um aðbúnað á minkabúum síðasta vetur. Þá voru sex minkabú í landinu. Nú er aðeins eitt eftir, Dalsbúið í Mosfellsbæ, þar sem brotist var inn í júlí.Rósa Líf Darradóttir sem situr í stjórn Samtaka um dýravelferð segir eitt minkabú vera einu of mörg.„Mér finnst ekki ganga miðað við þá þekkingu sem við höfum í dag hvað varðar velferð dýra, hvað varðar lýðheilsu, hvað varðar vistkerfin okkar á Íslandi, að við séum að fjöldaframleiða dýr sem búið er að skilgreina sem framandi ágenga tegund,“ segir Rósa Líf.Hún segir áhættuna af því að leyfa loðdýrarækt mun m