Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu

Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsráðandi stöðu.Samkvæmt heimildum fréttastofu snýst rannsóknin til að mynda um samninga við veitingastaði, bari eða hótel sem eiga að tryggja að aðeins Ölgerðin fái að selja drykki sína þar. Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki kannast við brot á samkeppnislögum.Slíkir samningar kunna að vera brot á samkeppnislögum ef fyrirtækið er markaðsráðandi á viðkomandi markaði. FYRIRFRAM GREIDD AFSLÁTTARKJÖR OG LÁNVEITINGAR TIL AÐ TRYGGJA EINKARÉTT Heimildamenn fréttastofu fullyrða að Ölgerðin hafi í einhverjum tilfellum rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu á vörum Ölgerðarinnar, styrkjum, fyrirframgreiddum afslætti og lánveitingum.
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd