Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Ísraels á Gaza þjóðarmorð.Greint var frá því í dag að suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navi Pillay hlyti friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum og fyrir að sækja til saka þá sem gerast sekir um stríðsglæpi og hópmorð.Pillay er dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn og var mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna um árabil. Hún var áður fyrr formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu.Nefndin komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að Ísrael fremdi þjóðarmorð á Gaza. SEGJA GOEBBELS FAGNA ÚR HELVÍTI Skrifstofa Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísra