Sigurveig I. Jónsdóttir er látin

Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram í tilkynningu.Sigurveig fæddist í Reykjavík 9. september 1943 og lést í dag, 9. október. Hún var yngst fjögurra systkina. Foreldrar hennar voru Jón Sigurður Helgason stórkaupmaður og Hanna Alvilda Helgason húsmóðir.Hún átti þrjá bræður, tveir þeirra eru látnir. Þeir eru myndlistarmaðurinn Torfi og Helgi V. lögmaður og endurskoðandi. Eftirlifandi er Hallgrímur G. Jónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri.Sigurveig giftist Víglundi Þorsteinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra B.M. Vallár, árið 1964. Þau skildu. Víglundur lést 2018.Synir þeirra eru Jón Þór, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Þorsteinn, forstjóri Hornsteins og Björn,
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd