Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg

Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars. Annar maður hlaut 18 mánaða fangelsisdóm fyrir sinn hlut í málinu en sá þriðji var sýknaður.Þetta staðfestir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður mannsins sem hlaut 18 mánaða dóm, í samtali við fréttastofu. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en hefur ekki verið birtur.Kareem var ákærður fyrir að hafa ekið á brotaþola á miklum hraða og hlaut fimm ára dóm fyrir. Maðurinn sem hlaut 18 mánaða dóm var ákærður fyrir að hafa stungið brotaþola í vinstri rasskinn. Þriðji maðurinn var ákærður fyrir að hafa barið brotaþola ítrekað með óþekktu áhaldi, en hann var sýknaður.
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd