Samtök um dýravelferð, Humane World for Animals og Norræna húsið standa fyrir málþingi um loðdýrarækt á Íslandi í dag. Þar verður meðal annars fjallað um stöðu greinarinnar, þróun hennar síðasta áratug, dýravelferð, efnahagslega þætti og hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér.