Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku

Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir sveitarstjórnarfulltrúa hafa gefið leyfi fyrir sundferðinni og leiðbeint þeim hvernig þeir ættu að bera sig að.Kjördæmavika Alþingis var í síðustu viku. Formleg dagskrá var á Vopnafirði á miðvikudag, en kvöldið áður sóttu þingmenn Norðausturkjördæmis kynningu frá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði ásamt fulltrúum úr sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps.Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, staðfestir í samtali við fréttastofu að menn hafi farið í sund eftir lokun í Selárlaug á þriðjudagskvöldið, með leyfi sveitarstjórnarfulltrúa. Hann segir hugmyndina hafa komið til tals og að þeim hafi veri
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd