Samkomulag VR við Samtök atvinnulífsins náðist klukkan 15:59 í gær, aðeins mínútu áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rann út. Ýmislegt hefur verið haft uppi um atburðarásina fram að því að samningar náðust.Formaður VR segir útspil ríkisstjórnarinnar og nýtt forsenduákvæði hafa skipt sköpum til að samningar hafi náðst.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, sögðu aftur á móti að ekkert nýtt fælist í samkomulaginu. Deilur VR við SA síðustu daga hafi verið leikrit.Til að mynda hafi vaxtabótaauki, sem formaður VR segir að hafa gert lokaútslagið, þegar legið fyrir þegar Breiðfylkingin samdi við SA á þriðjudaginn. SEGJA HAFI FÆÐST Á ÞRIÐJUDAG EN ÚTFÆRÐ Í GÆR Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir ekki rétt að þa