„Ég held að við séum komin út í öfgar“

Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt úttekt ASÍ.Þegar fleira en eitt barn er á heimilinu og börnin stunda fleiri en eina íþrótt getur samanlagður kostnaður orðið mikill.Auk æfingagjalda þarf að standa straum af kostnaði vegna móta, útbúnaðar og ferðalaga. Ofan á það leggja sumir foreldrar í mikinn aukakostnað við séræfingar barna sinna.Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, segir kröfur foreldra oft geta verið íþróttafélögum íþyngjandi. ÆFINGAGJÖLD STANDA EKKI UNDIR REKSTRI STARFSINS Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félaga fyrir jafngömul börn og kostnaður eykst oft með aldri og auknum kröfum.Hafrún segir að hjá mörgum félögum dugi tekjur af æfingagjöldum þó ekki fyrir rek
„Ég held að við séum komin út í öfgar“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd