Eignaðist fyrstu byssuna þrettán ára

,,Ég var rosalega hittin, en ég er það kannski ekki í dag. Þetta er rússnesk byssa númer tuttugu”, segir Guðrún Fjeldsted um fyrstu byssuna sem hún eignaðist og notaði við rjúpnaveiði frá þrettán ára aldri.Veiðiskapur af allskyns tagi hefur verið hluti af lífi Guðrúnar frá unga aldri. Hún er alin upp á bænum Ferjukoti við Hvítá í Borgarfirði en bærinn á sér ríka sögu sem teygir sig allt aftur til landnámsaldar. KENNT FRÁ UNGA ALDRI AÐ UMGANGAST SKOTFÆRI Ferjukot var einn aðal laxveiðistaðurinn á sínum tíma og Guðrún og bræður hennar tveir lærðu snemma að veiða sér til matar með netaveiði í Hvítá og skytteríi. Guðrún segir að sér hafi verið kennt frá unga aldri að umgangast skotfæri en í dag þurfa einstaklingar að hafa náð tuttugu ára aldri til að fá skotveiðileyfi samkvæmt vopnalögum se
Eignaðist fyrstu byssuna þrettán ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd