Tveir karlmenn hafa verið dæmdir í fangelsi í svokölluðu Höfðatorgsmáli, sem snýst um fólskulega árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík í mars síðastliðnum. Annar mannanna, Kareem M. M. Abufarhah, hlaut fimm ára fangelsisdóm en hinn, Mohamed Sayidali Ahmed, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi.