Rokksveitin SLYSH sendir hlustendum kveðju frá Hveragerði

SLYSH er rokkhljómsveit frá Hveragerði sem hefur starfað í um fjögur ár. Þetta eru 17 og 18 ára piltar, Gísli Freyr Sigurðsson sem syngur, Eyvindur Sveinn Lárusson á rythmgítar, Björgvin Svan Mánason á gítar, Stefán Gunngeir Stefánsson trommar, Hrafnkell Örn Blöndal Barkarson spilar á hljómborð og Úlfur Þórhallsson á bassa.Þeir voru að senda frá sér nýtt lag. Gítarleikarinn Björgvin kom til söngvarans með riff og þeir dunduðu sér við að semja texta við lagið. Hinn síðarnefndi var að ganga í gegnum ástarsorg á þessum tíma. „Í þessari ástarsorg hugsaði ég mikið til þeirrar manneskju, um lykt sem minnti hann á hana eða lag og þannig varð þetta til.“
Rokksveitin SLYSH sendir hlustendum kveðju frá Hveragerði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd