Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, er stödd í Tyrklandi og varar við að staða mannréttindamála geti enn frekar hægt á umsóknarferli landsins. Miklar tafir hafa orðið á aðildarviðræðum.Kos lýsti í morgun yfir miklum áhyggjum af stöðu lýðræðismála í Tyrklandi. Það varar við því að skerðing mannréttinda veiki enn frekar stuðning við aðildarumsókn Tyrkja, sem hefur verið í hnút árum saman.Aðildarviðræður Tyrkja hófust árið 2005, sex árum eftir að landið sótti um aðild, og hafa iðulega strandað vegna sambærilegra áhyggna.Kos segir helstu ástæðurnar fyrir mögulegum töfum vera niðurbrot fjölmiðlafrelsis í Tyrklandi, hömlur á réttindum hinsegin fólks, stöðu réttarríkisins og lýðræðishalla á sveitarstjórnarstiginu.Stækkunarskýrsla sem birt verður í mánaðarlok muni endurspegla þann ugg sa