Maður sem missti dóttur sína á sjúkrahúsi erlendis vildi að Sjúkratryggingar Íslands tækju að sér samskipti við erlend stjórnvöld vegna andlátsins. Hann taldi aðstoðina ófullnægjandi og kvartaði til umboðsmanns Alþingis eftir að heilbrigðisráðuneytið hafnaði athugasemdum hans.