Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út 7. október. Alls bárust 35 umsagnir, langflestar neikvæðar. Sveitarfélög á Suðurlandi benda meðal annars á að ósanngjarnt sé að gjald sem þetta sé eingöngu lagt á ferðamenn sem fara Gullna hringinn.Ferðaþjónustufyrirtæki á borð við Icelandair, Friðheima og Arctic Adventures eru mjög gagnrýnin og Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, leggjast alfarið gegn frumvarpinu.Áður hefur verið fjallað um þessa fyrirhuguðu gjaldtöku í Speglinum en rifja má upp að eingöngu erlendir ferðamenn sem heimsækja Þingvelli, Gullfoss eða Geysi eiga að greiða gjaldið, 4.500 krónur yfir háannatímann en annars 3.000 krónur. Þau sem eru með skattalega heimilisfesti á Íslandi eru undanþegin gjaldinu.A