Einn slasaður eftir harðan árekstur rétt fyrir utan Akureyri

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að tveir bílar rákust saman við Hlíðarbæ, á þjóðveginum, rétt norðan við Akureyri fyrir skemmstu.Sex farþegar voru í bíl sem ók út frá afleggjaranum við Hlíðarbæ í veg fyrir bíl sem keyrði í norður frá Akureyri. Allir sex sluppu ómeiddir úr bílnum sem ók út á þjóðveginn en sá sem ók hinum bílnum var fluttur á sjúkrahús, ekki talinn alvarlega slasaður. Þetta staðfesti Jón Valdimarsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Lögreglan stjórnar nú umferð um svæðið og búast má við smávægilegum umferðartöfum á vettvangi þar til bílarnir verða fluttir á brott. Lögreglan stýrir umferð á svæðinu um þessra mundir.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Einn slasaður eftir harðan árekstur rétt fyrir utan Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd