Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki kannast við að fyrirtækið hafi misnotað markaðráðandi stöðu sína á drykkjarvörumarkaði. Þeir segja að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á meintum slíkum brotum hafi hafist eftir kvartanir frá keppinautum fyrirtækisins.Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins.Þar segir að húsleitin varði rannsókn eftirlitsins á meintum brotum Ölgerðarinnar um bann við misnotkun á markaðsráðandi söðu. Stjórnendur Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki hafa neinar upplýsingar um að slík brot hafi átt sér stað í starfsemi félagsins.Í tilkynningunni segir að rík áhersla sé lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri og að starfsfólk fái fræðslu um hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að því hvort Bera,