Umhverfisráðherra í ríkisstjórn sem hefur beitt fyrir sig slagorðinu „ræsum vélarnar“, lýsti því yfir á dögunum að sér þættu vindmyllur fallegar. Hann hvatti Íslendinga til að aðlaga fegurðarskyn sitt að slíkum mannvirkjum. Samkvæmt erlendum viðmiðum getur ein vindmylla sést á svæði í 45 kílómetra radíus. Það jafngildir 6 prósentum af heildarlandsvæði Íslands fyrir eina vindmyllu án fyrirstöðu. Nú þegar eru...