Frestur til að gera athugasemdir við áform Umhverfis- og orkustofnunar um að veita Samherja bráðabirgðastarfsleyfi til fiskþurrkunar á Laugum í Reykjadal rennur út á mánudag. Vinnslan hefur verið lokuð frá því um miðjan september. Um 20 starfsmenn störfuðu þar. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar væntir þess að starfsemin hefjist að nýju sem allra fyrst.„Þetta er bráðabirgðaleyfi til eins árs og snýr að því að það þurfi að rannsaka áhrif á vatnshlot og fleira. Við erum búin að setja þetta á dagskrá hjá umhverfisnefnd hjá okkur því hluti fráveitunnar hjá okkur er með sama viðtaka. Við erum líka að reyna að skoða það sem snýr að sveitarfélaginu,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit. LEYFIÐ AFTURKALLAÐ EFTIR KÆRU ÍBÚA Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindam