Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Vika einmanaleikans er nú haldin í annað sinn á vegum Kvenfélagasambands Íslands.Henni er ætlað að vekja til umhugsunar og hvetja til aukinnar samkenndar og mannlegra samskipta.Um tuttugu þúsund símtöl berast árlega í Hjálparsímann 1717. Fjórðungur þeirra er frá fólki sem er félagslega einangrað. MIKILVÆGT FYRIR FÓLK AÐ EIGA EINHVER MANNLEG SAMSKIPTI Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, segir að margir hafi samband daglega.„Þegar að fólk býr við mikla félagslega einangrun, það þarf að eiga bara þessi félagslegu, mannlegu samskipti sem eru okkur öllum mikilvæg. Þá hefur það samband við okkur.“Sandra segir fólk hafa samband oft bara til að