Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Stöðvar 2 og af því tilefni verður sýndur afmælisþáttur í kvöld þar sem litið verður yfir farin veg og rætt við ýmsar stjörnur, gamlar og nýjar, sem settu svip sinn á stöðina. Vala Matt verður á sínum stað með græna pennan og Simmi Vill mætir með handrið sem hann braut eftirminnilega af Fokker-flugvél við tökur á Idol stjörnuleit.