Vinstri græn gagnrýna fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir árið 2027 og segja markmiðið um hallalausan ríkissjóð ekki mega nást á kostnað almennings. Flokkurinn vill meðal annars falla frá auknum komugjöldum í heilbrigðiskerfinu, endurskoða fækkun ríkisstarfsmanna og auka framlög til loftslagsaðgerða. „Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í fjárlagafrumvarpinu er kolröng gagnvart almenningi og ekki í neinu samræmi við þau fyrirheit stjórnvalda að verja tiltekna...