Grunur um sex ára markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar

Samkeppniseftirlitið hefur ráðist í húsleit hjá Beru vegna gruns um að dótturfélag þess, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hafi gerst sekt um markaðsmisnotkun. Rannsóknin beinist að meintum brotum sem eiga að hafa verið framin undanfarin sex ár.Bera tilkynnti Kauphöllinni um húsleitina á ellefta tímanum í dag. Þar sagði að Samkeppniseftirlitið hefði hafið húsleit og tilkynnt félaginu að það hefði hafið mál vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar.Rannsóknin byggir á ákvæðum samkeppnislaga sem banna markaðsráðandi fyrirtækjum að misnota aðstöðu sína. Rannsóknin beinist að starfsemi Ölgerðarinnar á sex ára tímabili, frá 2020 til dagsins í dag.Samkeppniseftirlitið fékk heimild Héraðsdóms Reykjavíkur til að ráðast í húsleit.Bera sendi eftirfarandi tilkynningu til Kau
Grunur um sex ára markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd