Lagið „Fokkamérupp“ með Alösku og Frumburði kom út á miðnætti og tónlistarmyndband við lagið er frumsýnt á Vísi í dag. Tónlistarmyndbandið er innblásið af íslenskum kvikmyndum á borð við Blossa, Íslenska drauminn og Astrópíu sem komu út í kringum aldamót og var það tekið upp á filmu til að fanga nostalgíutilfinninguna.