Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum samkeppnislagabrotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu Beru til Kauphallarinnar. Rannsóknin snýr að ætluðum brotum á 11. grein samkeppnislaga, sem bannar fyrirtækjum að misnota markaðsráðandi stöðu sína. Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur. Í tilkynningunni kemur ekki fram í hverju hin ætluðu brot felast....