Taka höndum saman um að tryggja fréttaflutning á viðsjárverðum tímum

Almannaþjónustumiðlar á Norðurlöndum hafa samþykkt að vinna saman að því að styrkja varnir sínar og þanþol til að takast á við óvissu og ógnir.Ríkisútvarpið, DR í Danmörku, NRK í Noregi, SVT, SR og UR í Svíþjóð og YLE í Finnlandi hafa undirritað Reykjavíkuryfirlýsinguna svokölluðu. Hún felur í sér samvinnu og samstarf við að koma efni og þjónustu fjölmiðlanna til skila; þar á meðal ábyrgri fréttamennsku, menningu og traustum upplýsingum. Þetta á við í krísum eða þegar alvarleg ógn steðjar að.Samstarfið er þvert á landamæri en á að tryggja ritstjórnarlegt frelsi og taka mið af landslögum á hverjum stað.Meðal þess sem fjölmiðlarnir ætla að gera er að deila hver með öðrum þekkingu, þjálfun og rannsóknaraðferðum til að sannreyna upplýsingar og sporna gegn upplýsingaóreiðu. Einnig á, eftir atvi
Taka höndum saman um að tryggja fréttaflutning á viðsjárverðum tímum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd