Í Lestinni fjallaði Fríða Þorkelsdóttir um myndefni sem unnið er af gervigreind, sem æ oftar birtist í barnabókum. Allur gangur er á hver er skrifaður fyrir myndunum, stundum er það höfundur bókarinnar, stundum forlagið sem gefur út en í öðrum tilvikum er ekkert tekið fram um myndhöfund. Því er ómögulegt fyrir neytendur að vita fyrir víst hvort bækurnar séu unnar af gervigreind eða ekki. LJÓST AÐ MYNDIRNAR SÉU GERÐAR AF GERVIGREIND Ný bók, Kóngurinn Moli, er væntanleg frá Skoppu og Skrítlu, eða Hrefnu Hallgrímsdóttur og Lindu Ásgeirsdóttur. Í Lestinni skoðar Fríða myndirnar í bókinni með myndhöfundinum Elíasi Rúna, sem hefur myndskreytt margar barnabækur, og þykir alveg ljóst að þessar myndir séu gerðar af gervigreind. Það veki þó furðu enda hafa Hrefna og Linda verið þekktar fyrir metn