Milduðu dóm yfir fíkniefnasmyglara

Landsréttur mildaði í gær dóm yfir Sarunas Juozaponis sem sakfelldur var fyrir að smygla 3.000 millilítrum af kókaíni í vökvaformi til landsins. Hann hlaut þriggja og hálfs árs dóm í héraði en Landsréttur dæmdi hann til þriggja ára fangelsisrefsingar.Juozaponis var handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komuna frá Lettlandi í nóvember í fyrra. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi í tæpa ellefu mánuði og dregst sá tími frá fangelsisdómi hans. Keflavíkurflugvöllur. Safnmynd.RÚV / Ragnar Visage
Milduðu dóm yfir fíkniefnasmyglara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd