Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í kvöld rokksöngleikinn Vorið vaknar. Ungt fólk í uppreisn er þar í aðalhlutverki og fléttar verkið saman siðferði, kynlíf og rokk. Einn forsvarsmanna sýningarinnar segir það lýðheilsumál að rækta bæjar- og áhugaleikhús landsins.