Kópavogsbær ætlar að ráðast í átak til að fjölga starfsfólki í grunnskólum sem er með kennaramenntun. Bærinn ætlar að veita leiðbeinendum í grunnskólum námsstyrk til að stunda kennaranám samhliða starfi. Þetta er hluti af stefnu sem bæjarstjórn samþykkti í fyrrahaust. Í tilkynningu frá bænum segir að í tillögu um fjölgun kennara sé horft til reynslunnar sem hafi gefist af sambærilegu átaki í leikskólum.Börn á grunnskólaaldri. Mynd úr safni.Shutterstock