Líkurnar á því að Julia Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans Alexei Navalní, hljóti friðarverðlaun Nóbels ruku skyndilega upp á vinsælli veðmálasíðu í nótt. Það sama gerðist fyrir ári kvöldið áður en tilkynnt var að leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela hlyti verðlaunin.