Rétttrúnaðarkirkjan og múslimar missa lóðirnar

Borgarráð samþykkti í gær að afturkalla úthlutun tveggja lóða sem trúfélög fengu fyrir meira en áratug.Rússneska rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi, söfnuður Moskvu-Patríarksins, fékk úthlutað lóð við Mýrargötu 2008 til að reisa sér kirkju og Félag múslima á Íslandi fékk lóð við Suðurlandsbraut 2013 til að reisa sér mosku. Hvorugt trúfélagið hefur hafist handa við framkvæmdir.Borgarráð samþykkti með atkvæðum meirihlutans og Miðflokksins að afturkalla lóðaúthlutanirnar en Samfylkingin sat hjá við afgreiðslu málsins.Borgarráðsfulltrúar meirihlutans bókuðu að málefnalegar forsendur væru fyrir því að afturkalla úthlutunina þar sem engar framkvæmdir hefðu hafist þrátt fyrir liðna framkvæmdafresti og fyrri framlengingar. Meirihlutinn lagði áherslu á að þetta væru almennar aðgerðir og sagði mikilvægt
Rétttrúnaðarkirkjan og múslimar missa lóðirnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd