Kona sem starfar á Landspítalanum braut lög þegar hún fletti upp í sjúkraskrá annarrar konu án leyfis og án þess að það tengdist starfi hennar á nokkurn hátt. Landspítalinn vísaði ábyrgðinni á uppflettingunum alfarið á hendur starfsmanninum sem ansaði ekki beiðni Persónuverndar um skýringar.