Aukakosningar voru haldnar í Holborn og St. Pancras, kjördæmi Keir Starmers, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, í gær. Kosið var um sæti Starmers en Sagal Abdi-Wali, frambjóðandi Verkamannaflokksins, sigraði með miklum yfirburðum og tryggði sér tæplega 12.292 atkvæði.Leiðtogi Græningja, Zack Polanski, varð í öðru sæti með 8.928 atkvæði. Það þykir mikill skellur fyrir Græningja að hann hafi ekki tryggt sér sætið.Sagal Abdi-Wali hefur fangað athygli fjölmiðla á Bretlandi með sigri sínum. Hún kom til landsins sex ára gömul sem flóttamaður frá Sómalíu, ásamt foreldrum sínum og fjórum bræðrum. Hún eignaðist vini í gegnum fótbolta áður en hún náði tökum á ensku.Abdi-Wali varð leiðtogi Camden-borgarstjórnarinnar í maí, fyrst kvenna. Hún vill bæta stöðu heimilislausra og skapar tækifæri fyrir ungt