Hverju er verið að mótmæla í Frakklandi?

Mikil mótmæli hafa verið í Frakklandi undanfarna daga. Hundruð þúsunda hafa tekið þátt í þeim og þau hafa breiðst út um allt land.Mótmælin hófust meðal nemenda í framhaldsskólum sem kröfðust betri aðbúnaðar í skólum. Nemendur tala um slæmar aðstæður. Í sumum skólum séu hvorki næg borð né stólar fyrir nemendur og dæmi hafa verið tekin um skóla þar sem ekki eru hurðir á salernum.Nemendur tala um yfirfulla bekki, langa skóladaga og vinnuaðstæður kennara.Þeir krefjast þess að stjórnvöld setji fjármagn í viðhald skólabygginga til að tryggja viðunandi námsaðstæður.Kröfurnar hafa svo orðið skýrari og fleiri. LÖGREGLA HEFUR HANDTEKIÐ FJÖLDA UNGMENNA Mótmælin hófust upp úr miðjum september og síðan þá hafa yfir sex þúsund verið handtekin.Í byrjun október sagði ríkisstjórn Frakklands að mótmælin
Hverju er verið að mótmæla í Frakklandi?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd