Stórmyndin Digger tæklar ýmis áleitin málefni samtímans: yfirstandandi hamfarahlýnun, hlutverk listar fyrir samfélagið og andvaraleysi nútímamannsins sem deyfir sig með afþreyingu meðan hann flýtur sofandi að feigðarósi. Þó að kafað sé ofan í fjölmörg mál er of grunnt farið og tapast sagan á endanum í frásagnarföndri.