Hægir vindar og stöku skúrir

Tiltölulega rólegt veður verður víðast hvar á landinu í dag með þeirri undantekningu að hvass vindur verður með norðausturströndinni fram eftir morgni. Fólk má þó víða búast við því að það rigni á það af og til. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðaustan átt, 10-15 metrar á sekúndu, með norðausturströndinni fram eftir morgni, en annars mun hægari. Skúrir eða dálítil rigning öðru hvoru. Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 í dag og rigning eða skúrir á víð og dreif, 8-15 suðvestanlands, en norðaustan 8-15 norðvestanlands, hvassast úti við sjóinn.Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 og víða skúrir á morgun, en þurrt að kalla norðaustantil. Hiti víða 5 til 10 stig.
Hægir vindar og stöku skúrir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd