Að minnsta kosti 20 þúsund manns gengu fylktu liði eftir götum Madrídar í gærkvöldi til að minnast hinnar áttatíu og sjö ára gömlu Maricarmen Abascal sem varð kveikjan að háværum mótmælum í landinu eftir að hún var borin út úr íbúð sinni.Abascal, sem jafnan var þekkt undir fornafni sínu Maricarmen, lést á miðvikudag á spítala. Þangað var hún flutt vegna mikils kvíða og ofsaþreytu.Mál Abascal komst í heimsfréttirnar þegar hún var borin út úr leiguíbúð sinni en þar hafði hún búið í sjö áratugi. Spænska fasteignafélagið Urbagestión, sem hafði eignast íbúðina, hækkaði leiguna umtalsvert með þeim afleiðingum að Abascal réði ekki lengur við upphæðina og því var hún borin út 23. september. NÁÐI ALDREI AÐ KOMAST AFTUR HEIM 28. september greindi Beatriz Duro lögmaður Abascal frá því á blaðamanna