Síldarvertíðin gengur vel og fiskurinn er verkaður allan sólarhringinn hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og eru allt að tuttugu og fimm manns að störfum hverju sinni.Á vef Vinnslustöðvarinnar er haft eftir Sindra Viðarssyni sviðsstjóra uppsjávarsviðs að vinnslan hafi farið af stað í september og gert sé ráð fyrir að um tvær vikur séu eftir af vertíðinni.Skip sem halda úr höfn frá Vestmannaeyjum þurfa að sigla í rúmar tuttugu klukkustundir á miðin austan við landið en þar er norsk-íslenska síldin veidd. Hún er yfirleitt stærri en íslenska síldin.Sindri segir að skipin hafi jafnan komið með á bilinu sjö hundruð til þúsund tonn til löndunar og því hafi tekist að halda vinnslunni gangandi næstum samfleytt þótt styttri hlé hafi verið gerð vegna veðurs.