Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hafa staðfest að liðsmenn tolla- og innflytjendaeftirlitsstofnunar Bandaríkjanna, ICE, beri ábyrgð á því að maður var skotinn í borginni í gær.Mamdami hefur enn fremur greint frá því að fimm ára barn hafi verið í bílnum með manninum en barnið sakaði ekki. Maðurinn var færður á spítala og er enn þá á lífi.Talsmaður heimavarnarráðuneytisins segir að ICE-liðar hafi ætlað að handtaka ólöglegan innflytjanda frá Dóminíska lýðveldinu sem áður hafði verið sakfelldur fyrir þjófnað og handtekinn nokkrum sinnum fyrir rán, vörslu fíkniefna og ólöglegan vopnaburð. MÖRG HUNDRUÐ MANNS MÓTMÆLTU Í GÆR Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, hefur kallað eftir því að yfirvöld veiti fullan aðgang að upplýsingum um atviki