Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opnun sérstakrar rannsóknarmiðstöðvar um bólusetningarHann segir nauðsynlegt að hlustað sé á sjúklinga og fjölskyldur sem segi frá „bólusetningaráverkum“, eins og hann orðar það í tilkynningu sinni. Markmiðið segir hann vera að byggja aftur upp traust til heilbrigðisyfirvalda.Kennedy var skipaður heilbrigðisráðherra af Donald Trump Bandaríkjaforseta þrátt fyrir að hafa engan bakgrunn í heilbrigðisvísindum. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir tilraunir sínar til að breyta umgjörð um bólusetningar barna í landinu en sjálfur hefur hann haldið á lofti ýmsum samsæriskenningum um bólusetningar. ÞEGAR UNDIR STÖÐUGU EFTIRLITI Bóluefni geta haf