Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla

Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina upp.Þetta sagði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, á neyðarfundi með ráðherrum og yfirmönnum öryggismála í dag. Pólska ríkisútvarpið greinir frá.Drengurinn, sem er fyrrverandi nemandi skólans, réðst inn í grunnskóla í bænum Leszczydół-Nowiny, norðaustur af Varsjá, í morgun. Hann réðst á þrjá starfsmenn skólans, þar á meðal skólastjóra og ræstingakonu.Konan, sem var 37 ára og tveggja barna móðir, lést þrátt fyrir endurlífgunartilraunir. Skólastjórinn og kennari særðust þegar þau reyndu að stöðva árásina. Skólastjóranum tókst að yfirbuga drenginn. ÓTTAST AÐ ÁRÁSIRNAR TENGIST ÁSKORUNUM Á NETINU Tusk lýsti áhyggjum af aukinni ofbeldisdýr
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd