Gleymd skotvopn á salernum, týnd skotfæri, fyllerí og óhappaskot. Fjöldi áminninga í garð sænskra lögregluþjóna fyrir ýmsar skráveifur í starfi hefur tæplega fjórfaldast á fimm árum samkvæmt nýrri tölfræði sænsku lögreglunnar sem ríkisútvarpið þarlenda, SVT, fjallar um.