Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál eru meðal helstu umræðuefna þingsins.Beinir Johannesen, lögmaður Færeyja, er meðal gesta og segir mikilvægt að íbúar vestnorrænu landanna hafi sjálfir áhrif á umræðuna um framtíð svæðisins.„Ég tel það skipta miklu máli að þeir sem búa í þessum löndum séu þeir sem setji það í umræðuna hvernig framtíðin á að vera,“ segir Beinir.Færeyingar vinna nú með dönskum stjórnvöldum að uppsetningu loftvarnarratsjáa og áform eru um strandratsjár. Beinir segir Færeyinga ekki stefna að sérstökum varnarsamningi við Bandaríkin, líkt og Grænlendingar hafa gert, heldur áframhaldandi samstarfi við NATO.