Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi

Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í dag að almenningi yrði gert kleift að fylgjast með aftökunni, sem á að fara fram með aftökusveit í Fort Hood, sömu herstöð og árásin átti sér stað, þann 3. desember.„Við munum tryggja að fólk geti horft á hana og að hún fari fram opinberlega,“ sagði Hegseth. Hann sagði mikilvægt að fólk gerði sér grein fyrir því að glæpir sem slíkir hefðu alvarlegar afleiðingar.Hasan, sem starfaði sem geðlæknir í Bandaríkjaher, skaut þrettán manns til bana og særði 32 til viðbótar á herstöðinni Fort Hood í nóvember árið 2009. Hann var dæmdur til dauða árið 2013 fyrir morðin.Skotárásin átti sér stað nokkrum v
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd