Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga skyldu hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.Mikilvæg skref hafi verið tekin varðandi þróun verðbólgu þar sem binding hafi fengist frá mörgum mismunandi sviðum samfélagsins.„Og festu á íslenskum vinnumarkaði út næsta árið, hvað varðar þessa hópa,“ segir hún.Samkvæmt samkomulaginu munu krónutölugjöld ríkisins ekki hækka um meira en 2,5% (að undanskildu kílómetragjaldi). Það á líka við um ríkisstofnanir og verður tilmælum beint til fyrirtækja í eigu ríkisins. Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sömuleiðis sveitarfélög til að hækka ekki gjaldskrár meira en 2,5% á árinu. SA hv
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd